"Í ályktuninni segir að laun eigi að endurspegla hæfni og að það sé óviðunandi að enn sé við lýði óútskýrður launamunur karla og kvenna. Á þessum vettvangi þurfi ríkið að fara á undan með góðu fordæmi og tryggja að hvergi í hinu opinbera kerfi líðist óútskýrður launamunur kynjanna. Þessi orð má skoða í því ljósi að Sjálfstæðisflokkurinn var í ríkisstjórn frá 1991-2009."
Nákvæmlega, voru þið ekki í ríkisstjórn undan farin 18 ár! Það er augljóst að kosningar eru handan við hornið, slepju og sleikjuháttur algjör.
|
Vilja breyta skilgreiningu hjónabandsins |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 27.3.2009 | 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hér er sko kona sem lætur ekki segja sér hvað hún hefur um málin að segja:) hún er frábær!!!
Frétt tekin af www.vísir.is :
"Forsetafrúin Dorrit Moussiaeff segist hafa varað við efnahagshruninu á Íslandi lengi vel í viðtali við glanstímaritið Condé Nast Portfolio. Langt viðtal við þau birtist í marshefti tímaritsins. Blaðamaður Portfolio lýsir hvernig Dorrit og Ólafur Ragnar Grímsson fara í hár saman þegar forsetafrúin lýsir því yfir að hún hafi beinlínis reynt að fá aðstoð vegna hugsanlegra efnahagserfiðleika árið 2006. Þegar á viðtalinu stóð var boðið upp á lax og hvítvín.
Varaði við hruninu
„Ég hef varað við þessu [efnahagslegu hruni Íslands] í langan tíma, og ég hef sagt það í hvert sinn sem banki opnaði á síðasta ári," segir forsetafrúinn við matarborðið.
Eiginmaður Dorritar, Ólafur Ragnar brást heldur ókvæða við þessum orðum konu sinnar og sagði: „Já, en það má ekki hafa þetta eftir þér."
Dorrit brest þá reiðilega við og spyr: „Hver segir það?"
Ólafur svarar þá: „Ég segi það, algjörlega."
En Dorrit lætur sér ekki segjast og heldur ótrauð áfram: „Árið 2006, þegar við borðuðum hádegisverð, sagði ég fyrir framan Jeffrey Sachs, getur þú ekki gert eitthvað í þessu? Getur þú ekki fengið alþjóðgjaldeyrissjóðinn til þess að koma hingað og sjá hvað er að gerast?" sagði Dorrit en Jeffrey Sachs er virtur hagfræðingur við Columbia háskólann í Bandaríkjunum. Blaðamaður tímaritsins bar orð Dorritar undir hagfræðinginn sem sjálfur kannast ekki við það, þó hann viðurkenni að hafa starfað með Ólafi þetta sama ár.
„Dorrit," segir Ólafur Ragnar þá með hvassri röddu, „þú getur samt ekki sagt þetta."
„Ég var að segja það," svaraði Dorrit þá.
„Já, en þú mátt það samt ekki, þú bara mátt það ekki," áréttar Ólafur Ragnar og segir við blaðmann tímaritsins að þetta megi ekki hafa eftir henni.
Síðar í greininni lýsir blaðamaður því þegar Dorrit hringir í hann og segir blaðamanninum, sem heitir Joshua Hammer, að honum sé frjálst að hafa þetta allt saman eftir henni, sem og hann gerir.
Eiga fátt sameiginlegt
Í viðtalinu lýsir Joshua því hversu ólík Dorrit og Ólafur Ragnar séu, hann sé rólegur maður sem skemmtir sér konungleg á spjalli um umvherfismál við Al Gore, á meðan hún sé félagströll í Bretlandi, umkringd frægum og ríkum vinum.
„Við eigum ekkert sameiginlegt nema það að við tölum bæði ensku og við elskum að fara á skíði," lýsti Dorrit sambandi sínu og sameiginlegum áhugamálum forsetahjúanna. Hún bætti svo við: Mér leiðast stjórnmál."
Samkvæmisstaða Dorritar óbreytt
Þegar forsetahjónin eru spurð út í Gordon Browm, forsætisráðherra Bretlands, og þá ákvörðun að beita hryðjuverkalögum á íslenska banka, segir Dorrit að þar með hafi Gordon svikið persónulega vináttu sína við Ólaf Ragnar fyrir pólitískan ávinning. Ólafur tekur undir þessi orð og bætti við dramatískur: „Þetta hefur breytt sýn minni á Gordon Brown til frambúðar."
Ólafur segir að ákvörðun breska forsætisráðherrans hafi einnig haft áhrif á vináttu Söru Brown, eiginkonu Gordons, og Dorritar. Þær hafa verið ötular við að safna pening fyrir góðgerðamál og borða stundum saman við slík tilefni. Vinkona Dorritar, sem er hluti af yfirstétt Bretlands, staðfestir við blaðamann tímaritsins að ákvörðun Browns hafi ekki haft áhrif á stöðu Dorritar í samkvæmislífi Bretanna.
Enginn missir húsið sitt
Ólafur Ragnar viðurkennir í viðtalinu að næstu ár munu verða Íslendingum erfið. Hann segir að það sé grundvallaratriði að húsnæðismál Íslendinga verði tryggð og bætir við að þúsundir munu sennilega missa heimili sín. Dorrit er í engu sammála þessu og sakar hann um að vera allt of svartsýnn. Upphefst þar með annað rifrildi þeirra á milli.
„Elskan, ég er ósammála þér," segir Dorrit og heldur áfram: „Enginn mun missa húsið sitt. Hvernig geta þeir misst húsin sín í landi þar sem má finna tvöfalt meira af húsum en fólki?"
„Dorrit, þú mátt ekki segja þetta," svaraði Ólafur þá.
Dorrit hélt áfram: „En þeir munu ekki geta selt húsin hvort eð er [...] Ég lofa þér að enginn Íslendingur muni verða heimilislaus hér á landi. Hvað mig varðar, þá er það augljóst."
„Dorrit, þú mátt ekki segja þetta, þú hreinlega mátt það ekki," sagði Ólafur Ragnar.
„Ég mun segja þetta. Hingað til hef ég haft rétt fyrir mér um allt það sem ég hef sagt."
Þá var stutt í fræðimanninn Ólaf sem svaraði konu sinni af hörku: „Þú getur vissulega sagt þetta. En þú hefur engan grundvöll til þess að halda þessu fram. Hvað þetta varðar hefur þú enga sérfræðiþekkingu til þess að halda þessu fram. Þú þekkir ekkert til íslenskra húsnæðislaga."
Dorrit gaf ekki undan og hélt áfram: „Hvað ætla þeir eiginlega að gera? Skilja þúsundi húsa eftir mannlaus?"
Dorrit skildi Ólaf eftir nokkuð orðlausan og hann bað hana um leyfi til þess að fá að halda áfram. Dorrit var hinsvegar ekki á þeim skónum, hún hélt ótrauð áfram: „Þegar ég er búinn. Það eru þúsundir íbúða þarna úti."
Ólafur Ragnar stöðvaði hana og sagði: „Í fyrsta lagi, Dorrit, þá er fjöldi heimilanna ekki aðalatriðið."
„Elskan," segir Dorrit og reynir að endurheimta orðið en Ólafur Ragnar grípur frammi í fyrir henni.
„Dorrit, Dorrit," sagði hann en missti orðið aftur til hennar.
„Það er enginn að fara bera fólk út. Ég skal segja ykkur afhverju. Enginn annar getur flutt inn í þessi hús. Og allir bankamenn eru..."
Ólafur greip aftur frammi í fyrir henni og sagði: „Dorrit, Ekki segja svona hluti."
Líður eins og kúgaðri eiginkonu
Blaðamaður tímaritsins lýsir því þegar hann sér mótmæli á Austurvelli á laugardegi. Hann segir Dorrit hafa litið til sín með öfundaraugum og sagt: „Mig langar mjög mikið til þess að mótmæla, en eiginmaður minn leyfir mér það ekki. Ég er eins og eiginkona araba," sagði Dorrit sem þráði að slást í hóp mótmælanda en fékk ekki.
Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér."
Bloggar | 9.2.2009 | 13:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
híhíhíhíhíhíhíhí....rahgataróur!!!!!
Bloggar | 30.1.2009 | 21:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fréttin sirka 5 orða og ekkert ítarefni, engar útskýringar.
Hér er það sem skrifað er um Geir:
"Geir Haarde, Icelandic prime minister
He announced on Friday that he would step down and call an early election in May, after violent anti-government protests fuelled by his handling of the financial crisis. Last October Iceland's three biggest commercial banks collapsed under billions of dollars of debts. The country was forced to borrow $2.1bn from the International Monetary Fund and take loans from several European countries. Announcing his resignation, Haarde said he had throat cancer."
Þetta er svosum lélegt úttekt líka, í rauninni ekkert sagt um það hvernig hann er ábyrgur. Og ekki einu sinni minnst á útrásarvíkingana, FME eða Seðlabankann.
Hér er fréttin í heild sinni : http://www.guardian.co.uk/business/2009/jan/26/road-ruin-recession-individuals-economy
Viðbót: um leið og ég var búin að vista færsluna og fór inn á fréttina aftur var búið að bæta helmingi meira við hana. Þeim liggur svo á að vera fyrstir með fréttirnar!
|
Geir Haarde sagður ábyrgur fyrir hruninu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 26.1.2009 | 10:32 (breytt kl. 10:35) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
|
Mótmæli um allt landið |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 26.1.2009 | 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra lætur skína í fyrirlitningu sína á mótmælendum á bloggsíðu sinni í gær. Þar segir hann meðal annars(ég feitletra það sem mér þykir sérstaklega áhugavert) :
"Fyrir utan Valhöll höfðu mótmælendur barið pottlok undir forystu Hallgríms Helgasonar rithöfundar en Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður, vék sér út af fundi og benti Hallgrími á, hvað Geir hefði sagt og hætti þá gauraganguinn utan dyra.
Formenn beggja stjórnarflokkanna glíma við veikindi, þegar um 100 dagar eru til kosninga. Steingrímur J. Sigfússon, formaður vinstri/grænna, tók að múðra yfir því, að kjördagu yrði 9. maí, hann ætti að verða fyrir páska. Kannski var hann að gera þetta, svo að mótmælendur gætu haldið áfram að kalla á kjördag, þótt hann hefði verið ákveðinn í vor.
Hörður Torfason, forgöngumaður mótmæla undir hinu hógværa heiti Raddir fólksins, gaf til kynna, að Geir væri að draga veikindi sín ómaklega inn í stjórnmálabaráttuna. Sagði Hallgrímur Helgason, rithöfundur, í Kastljósi eitthvað á þá leið, að Hörður hefði farið út fyrir hæfileg mörk og ætti að biðjast afsökunar.
Hallgrímur réðst síðdegis miðvikudaginn 21. janúar að bifreið Geirs, þegar henni var ekið frá stjórnarráðshúsinu, og lamdi hana utan með krepptum hnefa. Hvort Hallgrímur hafi beðist afsökunar á þeirri framgöngu, veit ég ekki, en skrýtið var að sjá hann uppblásinn af æsingi og hávaða, þegar ég gekk í flasið á honum á leið minni inn í Valhöll í dag."
Mikið er ég fegin að BB er að standa upp af stóli sínum sem dómsmálaráðherra þessa lands. Hrokagikkur og bullukollur á ekki heima þar.
|
Íslensk mótmæli vekja athygli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 24.1.2009 | 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég mætti á mótmælin hér á Ísafirði í dag og hlýddi þar á flott fólk flytja flottar ræður. Þar stóð upp úr ræða nöfnu minnar, Hörpu Henrysdóttur. Ég tók mér bessaleyfi og afritaði hana af síðu mömmu hennar sem var svo góð að setja hana þar inn, og birti hana hér fyrir þá sem ekki voru á staðnum :
Ég skil ekki neitt - en ég játa mig samt ekki heimska!
Fjögurra ára dóttir mín rekur bakarí undir stiganum heima hjá afa sínum og ömmu þar er hægt að kaupa ósýnilega snúða og ósýnilegar kringlur fyrir ósýnilega peninga. Í september kostaði snúðurinn hundraðkall, kringlan hundraðkall og kókómjólkin kostaði líka hundraðkall, nú er kominn janúar og þrátt fyrir að útsölur ættu að vera í fullum gangi kostar snúðurinn tvo milljarða, kringlan tíu milljarða, kókómjólkin þúsund og tuttugu milljarða og hundraðkall getur þú fengið fyrir skrilljarð. En þetta skiptir mig ekki nokkru máli því við erum ennþá að tala um ósýnilega hluti fyrir ósýnilega peninga, aftur á mótir versnar í því þegar við förum að blanda saman veröldunum tveimur og kaupa raunverulega hluti fyrir ósýnilega peninga.
Á Íslandi hafa ósýnilegir peningar verið í umferð um nokkurt skeið samhliða okkar almennu krónu. Almennar krónur eru notaðar til að borga almenningi laun, kaupa snúð og kókómjólk, borga fyrir leikskólapláss og til að kaupa sér píanó. Ósýnilegu peningarnir eru notaðir til að kaupa og selja hlutabréf og til að borga mönnum í ábyrgðarstöðum gríðarleg laun, þessir ósýnilegu peningar hafa líka verið notaðir til að kaupa kvóta, fjölmiðla, flugfélög og fleira sem var of dýrt fyrir hina almennu krónu, því ef maður á ekki fyrir flugélaginu sem mann virkilega langar í er auðvitað nærtækast að búa til svolítið af peningum og kaupa svo 12 miklu flottari flugfélög. Þetta væri auðvitað alveg yndislega ljúft líf, og var það vafalítið fyrir þá sem þess nutu um stund...
...en svo var komið að skuldardögum og þá kom í ljós að það voru ekki til nógu margar almennar krónur, það var ekki til ein raunveruleg króna á móti hverri einni ósýnilegri krónu og skyndilega eru ósýnilegu peningarnir ekki lengur ósýnilegir, þeir voru orðnir að raunverulegum skuldum.
Hinir ábyrgðarfullu peningaframleiðendur flýttu sér, fremstir í röðina áður en almennu krónurnar myndu klárast til að leysa út launatékkana sína, síðan hefur ekkert spurst til þeirra frekar en tröllanna sem eltu Búkollu og karlsson um árið.
Eftir stendur að ég, afi minn, foreldrar mínir og dætur mínar neyðumst til að hafa það að okkar ævistarfi að greiða fyrir 12,5% hlut furstans af fjarskanistan í ZR2-14 samsteypunni sem hann keypti á spott prís af BST9 hópnum og keisaranum í langtíburtistan, en keisarinn er einmitt þekktur fyrir að hafa haldið við dóttur furstans af fjarskanistan sem nýtti sér ástandið til að stofna skattaparadís í langtíburtistan og greiddi því einungis 1,3% skatt þar þrátt fyrir að vextirnir af öllum ósýnilegu peningunum hans sem lágu á bók slöguðu hátt í verga þjóðarframleiðslu hverginistans!
Þetta hljómar eins og bullusaga og er bullusaga, en svona viðskiptahættir hafa samt sem áður viðgengist á Íslandi í skjóli algjörlega ónýtrar ríkisstjórnar sem nú loksins ætar að lufsast frá, en ekki vegna þess að ráðamönnum finnist þeir hafa gert eitthvað rangt...
Ég vildi að ég gæti sagt upp þessu nýja djobbi! Nýja Harpa gæti byrjað upp á nýtt. Án áhrifa frá furstanum af fjarskanistan.
Ég vil að þjófarnir fari í fangelsi.
Ég vil að rolurnar fari heim til sín.
Ég vil að sömu reglur gildi fyrir alla.
Staðreyndin er sú að við borgum en þjófarnir, þeir leystu út tékkana sína og tékkuðu sig út.
Harpa Henrýsdóttir
Bloggar | 24.1.2009 | 18:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
SJF: Illugi Gunnarsson? ÞKG, KJ eða BB eiga ekki eftir að smala góðu fylgi á eftir sér hugsa ég. Illugi hefur staðið sig ágætlega.
SF: Dagur E? Ekki Ágúst Ó held ég. Dagur hefur staðið sig vel.
VG: Eygló Harðardóttir? Virðist vera kjarnakona, tiltölulega ný og fersk, virðist vera traustins virði án þess að ég viti mikið um það.
FL.......hef ekki skoðun
Ný öfl????? já takk!
|
Sjálfstæðismenn í sjokki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 24.1.2009 | 02:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég á ekki orð yfir ummælum Guðrúnar. Maður getur varla annað en vorkennt svona fólki sem hlýtur að vera með aumingjalega sál.
Skammastu þín Guðrún!
|
„Ekki farin að finna til með honum ennþá“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 23.1.2009 | 20:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er á engan hátt skoðun fólks sem hefur verið að mæta á mótmæli fyrir tilstuðlan Radda fólksins eða þeirra sem eru úti á landi að mótmæla. Ég get engan vegin ímyndað mér það. Þeir sem deila þessari skoðun hans um Geir og veikindi hans ættu þá að skammast sín.
Ég er sammála því að þettu er aðeins hænuskref í rétta átt að kosið verði en ummæli hans um Geir eru óverjandi. Ef þetta er aðeins hans skoðun ætti hann að biðjast afsökunar á að hafa sagt þetta sem talsmaður Radda fólksins, það hafi ekki verið gert í þeirra umboði!
|
Hænuskref í rétta átt |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 23.1.2009 | 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Tenglar
Barátta mín
Börnin
Myndir
Vinir og vandræðamenn
- Halla peningastjóri Bolungarvíkur
- Ólda frænka
- Lísbet stórkostlega
- Begig og co í Danaveldi
- Kolbrún and the gang
- Ásta María frænka
- Elman mín fagra
- Tinna sæta spæta
- Rauðalækur 9
- Spákonan á Kambinum
- Helen Garðars
- Ísar Huldumaður
- Minn heittelskaði
- Mysterious Marta
- Annska í Arnardal
- Gústa og drengirnir
Aðrir bullarar
Feb. 2010
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 |
Bloggvinir
-
jonaa
-
margretjonasar
-
ylfamist
-
marsibilkr
-
dita
-
matthildurh
-
jensgud
-
soley
-
hallasigny
-
thelmaasdisar
-
elma
-
irisrokk
-
husmodirin
-
hugrenningar
-
helengardars
-
skondrumamma
-
disadora
-
bjarnardottir
-
komediuleikhusid
-
bryndisfridgeirs
-
jara
-
arndiz
-
sigrunsigur
-
mode
-
katad
-
bergruniris
-
pallieliss
-
vestfirdingurinn
-
kamilla
-
rasan
-
kristg
-
laufeywaage
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 81465
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 36
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar








